Upplýsingar um fyrirkomulag sveinsprófa

Mennta- og menningarmálaráðherra ásamt skólameisturum starfsnámsskóla og umsýsluaðilum sveinsprófa hafa tekið saman höndum til að finna lausnir með það að markmiði að tryggja náms- og próflok hjá þeim sem stefna á sveinspróf.

Sveinspróf eru að jafnaði haldin í seinni hluta maí og fram í júní og hafa verið auglýst í samræmi við það. Vegna tímabundinna lokana skóla og margra vinnustaða hefur verið ákveðið að sveinspróf verði haldin 3-5 vikum eftir skólalok og eigi síðar en 15. september.

Eftir nokkrar vikur hefjum við viðspyrnu eftir þrengingar í samfélaginu og þá verður enn ríkari þörf fyrir nýútskrifaða í öllum iðngreinum.

Allir nemendur, sem hyggjast fara í sveinspróf í vor, eru því hvattir til að sækja um til umsýsluaðila sveinsprófa, IÐUNNAR og RAFMENNTAR.

Nemendur eru beðnir að fylgjast vel með þróun mála á heimasíðu skólans síns og umsýsluaðila sveinsprófa. Fundin verður lausn á vanda hverrar iðngreinar og sveinsprófstakar verða upplýstir eins fljótt og verða má.

Frekari upplýsingar má sjá hér.