VA kynnir skólann fyrir 10. bekkingum

Nú er búið að opna fyrir umsóknir 10. bekkinga í framhaldsskóla og hægt er að sækja um til 8. júní. Þessa dagana erum við í VA að heimsækja grunnskólanna í Fjarðabyggð og kynna fyrir þeim námið og lífið í skólanum okkar. Þann 29. mars nk. verðum við svo með opið hús fyrir alla áhugasama 10. bekkinga og forsjáraðila. Eftir páska fáum við svo nemendur 10. bekkja í grunnskólum í Múlaþingi í heimsókn. Endilega kynnið ykkur námsframboðið okkar hér á síðunni og ef einhverjar spurningar vakna þá má alltaf hafa samband með því að senda tölvupóst á va@va.is og í síma 4771620