Á myndinni má sjá Birgi Jónsson skólameistara VA ásamt fulltrúm stofnanna allra flokka í sætum 1-5 í Stofnun ársins.
Verkmenntaskóli Austurlands varð í fjórða sæti í könnuninni um stofnun ársins 2025 í flokki minni stofnanna, eða með 5-39 starfsmenn en alls eru veitt verðlaun í þremur flokkum stofnanna allt eftir fjölda starfsmanna. Jafnframt hlutum við titilinn fyrirmyndarstofnun 2025.
VA kemur gríðarlega vel út í heildareinkunn allra stofnana á vegum ríkisins, óháð starfsmannafjölda, og er þar með fjórðu hæstu meðaleinkunnina eða 4,67. Á þessum lista eru þó nokkrir framhaldsskólar sem koma vel út í könnuninni og gaman að segja frá því að á topp 10 listanum má finna 5 framhaldsskóla en listann má nálgast hér.
Einkunn VA endurspeglar góða stjórnunarhætti, sterkan starfsanda, góð vinnuskilyrði, jafnrétti og jákvæða ímynd stofnunarinnar svo fátt eitt sé nefnt og geta stjórnendur og starfsfólk VA verið afar stolt af þessum árangri en árangurinn er skýr vísbending um það að skólinn leggur mikið upp úr jákvæðu starfsumhverfi með jákvæða menningu í forgrunni.
Viðurkenning sem þessi er hvatning til að halda áfram á sömu braut, efla enn frekar góðan starfsanda og styrkja skólann sem framúrskarandi vinnustað.