VA hefur leik í Gettu betur í kvöld

Í dag, mánudaginn 5. janúar, hefur lið VA þátttöku í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu Betur. Þar mætum við liði Menntaskólans við Sund í beinni útsendingu á ruv.is og hefst útsendingin kl. 18:50.

Lið VA skipa þau Jóhanna Dagrún Daðadóttir, Emilía Ósk Pálsdóttir og Óliver Snær Stefánsson.

Áfram VA!