VA keppir í annarri umferð Gettu betur miðvikudaginn 18. janúar

Í síðustu viku komst Gettu-betur lið VA áfram sem stigahæsta tapliðið eftir 21-25 tap gegn liði Fjölbrautaskólans við Ármúla og nú er komið að næstu keppni.

Lið VA mætir Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í annarri umferð kl. 20:35 annað kvöld, miðvikudaginn 18. janúar. Viðureignin verður í beinni útsendingu á Rás 2. Við hvetjum öll til að hlusta og styðja við Ágústu, Geir og Ragnar!