Ykkur er boðið á Milljarður rís!

Dansbyltingin Milljarður rís verður haldin í íþróttahúsinu í Neskaupstað fimmtudaginn 14. febrúar kl. 12:30-13:00. Þar ætlum við að dansa gegn kynbundnu ofbeldi en um er að ræða viðburð sem UN women stendur fyrir og hefur gert undanfarin sjö ár.

Við viljum hvetja alla vinnustaði sem hafa tök á til þess að kíkja í íþróttahúsið í hádeginu og fá útrás í dansi undir tónlist sem DJ María Mey mun stjórna.

Við viljum einnig benda fólki á að mæta með FO húfur sem það kann að eiga en nýju FO húfurnar verða í sölu í íþróttahúsinu gegn staðgreiðslu. Húfurnar kosta það sama og hjá UN women, 4.900 kr.

 

Með danskveðju,

Verkmenntaskóli Austurlands