Fundur fyrir forsjáraðila

Okkur langar að bjóða forsjáraðilum á kynningarfund um eitt og annað sem við kemur skólastarfinu á morgun, miðvikudaginn 1. september kl. 17-18. Ef einhverjir eiga um langan vega að fara og sjá sér alls ekki fært að mæta verður boðið upp á spjallfund í fjarfundi frá kl. 18:00 – til 18:30. Hlekk á fjarfundinn má finna hér.

Á fundinum verður m.a. farið yfir breyttar skólasóknarreglur, veikindatilkynningar, nýja kerfið, nemendaþjónustu, jöfnunarstyrk, heimasíðu, Innu, forvarnir, félagslíf og hlutverk og þjónustu náms- og starfsráðgjafa..

Mikilvægt er að frá hverjum nýnema komi að minnsta kosti einn forsjáraðili.

Gott er að forsjáraðilar verði búnir að skoða Innu og kennsluvefinn. Forráðamenn eru með sér aðgang að Innu en nota aðgang nemendanna að kennsluvefnum. Á heimasíðu VA eru leiðbeiningar um það hvernig afgreiðslu lykilorða er háttað - https://www.va.is/is/thjonusta/afgreidsla-lykilorda

Sjáumst á morgun!