Skólasetning 20. ágúst

Skólasetning Verkmenntaskóla Austurlands verður mánudaginn 20. ágúst kl. 8:30 - í stofu 1. Að setningu lokinni taka við fundir með umsjónarkennurum og kennsla samkvæmt stuttri stundatöflu.

Skólaakstur hefst mánudaginn 20. ágúst.

Heimavist VA opnar sunnudaginn 19. ágúst kl. 18:00.

Hægt er að nálgast upplýsingar um skráða áfanga í Innu. Leiðbeiningar um hvernig á að sækja lykilorð í Innu eru hér á heimasíðunni.

Bókalistar eru á heimasíðu skólans (bókalistar) og nýjar bækur og ritföng eru m.a. til sölu í versluninni Tónspil í Neskaupstað.